Í miðbæ Platja d'Aro er fullt af góðum veitingastöðum, börum, verslunum og annarri afþreyingu. Verð í fataverslunum er oft um 15-20% lægra en í sömu verslunum í Barcelona. Veitingastaðir sem við mælum með: L'Italianini (heiðarlegur heimagerður ítalskur); La Dolce Vita (pítsur o.fl.); U35 (sushi); Enjoy It (stuð og stemning, stór matseðill og kokteilar); La Lolis (í fínni kantinum, Wellingtonið er frábært); Avaia (tapas og kokteilar); JamónArte (lítill seðill en framúrskarandi hráskinkur og rauðvín). Athugið að skoða opnunartíma verslana og veitingastaða á GoogleMaps. Sumar verslanir eru með "siesta" seinnipartinn, gjarnan frá um 13:30-17:00 en það er breytilegt eftir verslunum. Spánverjar borða seint! Veitingastaðir opna oft ekki fyrr en um 13:00 í hádegismat og um 19:30 fyrir kvöldmat, en þetta er líka breytilegt eftir stöðum.
Meðfram nær allri Costa Brava ströndinni er um 200 km gönguleið sem nefnist Camí de Ronda. Hún var upphaflega notuð af strandvörðum til að koma í veg fyrir smygl og bjarga sjómönnum. Þetta þýðir að næstum alls staðar á þessu svæði er þægilegur gangstígur meðfram ströndinni, oft með stórkostlegu útsýni yfir litlar strendur, tæran sjó, dramatíska kletta og heillandi sjávarþorp. Leiðin er merkt með litlu merki sem er rautt og hvítt. Fallegir kaflar á þessari gönguleið í nágrenni við Platja d'Aro sem við mælum sérstaklega með eru eftirfarandi: * Frá Platja d'Aro í suður, til S'Agaró (6 km) * Frá Platja d'Aro í norður, til Palamos (8 km) * Frá Calella de Palafrugell í norður, til Llafranc (2 km) eða áfram til Tamariu (5 km í viðbót) * Frá Calella de Palafrugell í suður, að El Golfet ströndinni (2 km)
Gullfallegt lítið strandþorp í 20 mín. fjarlægð með bíl frá Platja d'Aro. Þetta er einn uppáhalds staðurinn okkar á svæðinu. Af veitingastöðum í þessu þorpi mælum við alveg sérstaklega með Margarita.
Fallegt lítið miðaldaþorp sem gaman er að rölta um og tekur ekki langan tíma. Eitt best varðveitta miðaldaþorpið í Katalóníu og aðeins um 25 mín. akstur frá Platja d'Aro. Verslanir með handverk, fornmuni og fatnað, listagallerí, og nokkrir veitingastaðir. Við mælum sérstaklega með veitingastaðnum L'Eixida. Munið að taka "siestuna" með í reikninginn og athuga opnunartíma. Við mælum með að fara fyrir hádegi, rölta um þorpið í um eina klukkustund og enda svo á hádegisverði.
Líflegt og vinsælt miðaldaþorp um 25 mín. akstur frá Platja d'Aro. Rústir miðaldakastala gnæfa yfir þorpinu og gaman að labba upp að þeim og njóta útsýnis yfir strandlengjuna og nærliggjandi sveitir. Gamli bæjarkjarninn er fallegur og mikið úrval verslana, kaffihúsa og veitingastaða. Skammt frá Begur eru margar fallegar strendur sem njóta mikilla vinsælda. Þær helstu eru Aiguablava og Sa Tuna. Veitingastaðir sem við mælum með í Begur eru t.d. Clara og Havana. Munið að taka "siestuna" með í reikninginn þegar ferð er skipulögð, sem og opnunartíma veitingastaða. Fyrir bæjarstemningu mælum við með að fara seinnipartinn, þegar verslanir opna eftir siestuna um kl. 17:00. En ef sól og útsýni eru forgangsatriði, og jafnvel heimsókn á fallegu strendurnar skammt frá Begur, þá er gott að mæta fyrir hádegi.
Skemmtilegur bær 10 mín. akstur frá Platja d'Aro með góðum veitingastöðum og skemmtilegum verslunum í þröngum strætum. Við mælum með að fara í fyrsta lagi kl. 17:00 þegar verslanir eru búnar að opna eftir "siesta" eða jafnvel að kvöldi til; veitingastaðir opna gjarnan í kringum 19:30 (samt breytilegt eftir stöðum) og verslanir eru opnar fram á kvöld. Veitingastaðir sem við mælum með í Palamos eru Arrels (lítill tapas staður) og Dvisi (í fínni kantinum).
Tamariu er - ásamt Calella de Palafrugell - eitt fallegasta og rómantískasta strandþorpið á Costa Brava. Það hefur varðveitt sjarma sinn sem lítið fiskimannaþorp, er með fallega strönd, tæran sjó og umkringt dramatískum klettum og litlum víkum. Fjarlægð frá Platja d'Aro er aðeins um 25 mín. akstur. Í Tamariu er hægt að leigja litla vélbáta til að sigla um og skoða nærliggjandi víkur og strendur. Ekki þarf sérstakt próf á minnstu bátana.
Nokkuð stór og mjög vinsæll strandbær við Costa Brava ströndina, um 35 mín. akstur frá Platja d'Aro. Gamli bærinn er umluktur virkisveggjum sem voru reistir á 12. öld. Frá kastalarústunum er stórkostlegt útsýni yfir sjóinn og bæinn. Gamli bærinn er líflegur með mörgum verslunum og veitingastöðum.
Mjög skemmtilegur golfvöllur uppi í hæðunum fyrir ofan Platja d'Aro, aðeins um 10 mín. akstur frá bænum. Stórbrotið útsýni frá mörgum brautum. Áttundi besti golfvöllur Katalóníu héraðs samkvæmt Leading Courses. Mikið landslag. Nokkuð krefjandi völlur því margar brautir eru meðfram þéttum skógi og/eða skógi vöxnum giljum og brekkum þar sem auðvelt er að týna boltum.
Mjög fallegur og skemmtilegur 27-holu golfvöllur í þarnæsta bæ við Platja d'Aro, aðeins um 10 mín. akstur frá miðbænum. Útsýnið er ekki eins stórbrotið og frá Golf d'Aro vellinum en umhverfi og aðstæður eru samt til fyrirmyndar og þarna týnast færri boltar.