Loading
Loading
Loading
Loading
Loading
Loading
September 7, 2025
S'Agaró, Barcelona

Hjördís Lilja og Jón Arnar

    Heim
    Algengar spurningar

Algengar spurningar

Question

Þarf að fljúga til Barcelona?

Answer

Nei, þú getur flogið til Girona líka. Þá þarftu að millilenda ef þú ert að koma frá Íslandi. Það tekur um 40 mín. að keyra til Platja d'Aro frá Girona.

Question

Er nauðsynlegt að leigja bíl?

Answer

Við mælum með því að leigja bíl, en það er þó ekki algjörlega nauðsynlegt. Frá Barcelona-flugvelli eða úr miðbæ Barcelona er hægt að taka leigubíl til Platja dAro, sem kostar um 200+ evrur, eða rútu, en athugið vel hvort rútan gangi ennþá þegar flugið ykkar lendir í Barcelona. Boðið verður upp á rútu fyrir brúðkaupsgesti frá miðbæ Platja d'Aro til og frá brúðkaupinu í S'Agaro. Akstur þarna á milli er aðeins um 5-10 mín. Mikilvægt: Þjófnaður er nokkuð algengur á Barcelona-flugvelli, sérstaklega við bílaleigurnar. Passið því vel upp á eigur ykkar og farangur, sérstaklega hjá bílaleigunum.

Question

Hvaða bær er þessi Platja d'Aro?

Answer

Platja d'Aro er nokkuð stór bær um 75 mín. akstur norður af Barcelona. Bærinn er mjög stutt (um 5-10 mín. akstur) frá hótelinu í S'Agaro þar sem brúðkaupið verður haldið. Við mælum með að fólk gisti í Platja d'Aro, því þar er mest úrval af gistingu, veitingastöðum, verslunum og afþreyingu á þessu svæði. Heimili okkar fjölskyldunnar á Costa Brava er uppi í hæðunum fyrir ofan Platja d'Aro, um 5 mín. akstur frá bænum.

Question

Hvenær eru verslanir og veitingastaðir opnir?

Answer

Spánverjar borða seint. Algengt er að veitingastaðir opni ekki fyrr en um kl. 13:00 í hádeginu og svo um kl. 19:30 í kvöldmat. Margar verslanir loka yfir "siesta" seinnipartinn, gjarnan frá um 13:30 til 17:00. Þetta er þó breytilegt eftir verslunum og veitingastöðum. Sumir stórir staðir, til dæmis sumir staðir í Platja d'Aro, loka ekki neitt og eru opnir allan daginn og fram á kvöld. Það er engin EIN regla. Við mælum því með að þið skoðið opnunartíma á GoogleMaps ef þið hafið ákveðna verslun eða veitingastað í huga. Almennt séð er þetta allt annar taktur á opnunartímum en við Íslendingar erum vön - og því ágætt að hafa það í huga og vera undir það búin. Það er til dæmis ekki vænlegt til vinnings að ætla að borða hádegismat kl. 12:00 og fara svo í verslunarleiðangur kl. 13:00; hvorugt er líklegt til að vera opið á þessum tímum.

Question

Finn ég auðveldlega bílastæði ef ég er á bílaleigubíl?

Answer

Já, í Platja d'Aro er mjög stórt ókeypis bílastæði miðsvæðis í bænum. Það er alltaf opið nema á föstudagsmorgnum þegar bílastæðið er lagt undir útimarkað frá morgni rétt fram yfir hádegið. Skammt frá er annað mjög stórt bílastæði sem þarf að borga í (taka miða við innkeyrslu og borga svo í greiðsluvél fyrir brottför). Þessi tvö stóru stæði eru í auðveldu göngufæri við allt í Platja d'Aro bænum. Við mælum með að nota þau, því erfitt getur verið að finna laus götustæði á annatíma. Flestir aðrir bæir og þorp í nágrenninu eru einnig með stór bílastæði (oft borgandi stæði) sem auðvelt er að finna á GoogleMaps.

For all the days along the way
About ZolaGuest FAQsOrder statussupport@zola.com1 (408) 657-ZOLA
Start your wedding website© 2025 Zola, Inc. All rights reserved. Accessibility / Privacy / Terms