Loading
Loading
Loading
Loading
Loading
Loading
Floral

Ferðasaga

The Wedding Website of Kristín Fjóla Reynisdóttir and Magni Barðason
Elsku fjölskylda og vinir, Mig langar að deila með ykkur smá stemningu og innsýn í það sem bíður okkar í Ítalíu því þetta verður sannarlega upplifun sem á eftir að lifa lengi í minningunni. Ég átti þess kost að fara út og skoða aðstæður ásamt Sigrúnu Elvu sem sinnir hlutverki sérlegs aðstoðarmanns brúðhjónanna af miklum sóma. Við flugum til Rómar og héldum þaðan upp í sveitina þar sem brúðkaupið mun fara fram og það má með sanni segja að þetta verði varla ítalskara.
Question

Umhverfið

Answer

Umhverfið er einstakt. Við erum stödd í fallegu fjalllendi, umvafin náttúru og dýralífi við fjallið Rocca Romana sem rís 609 metra yfir sjávarmáli og gnæfir yfir Bracciano-vatnið. Í kring eru þrír litlir bæir, hver með sinn sjarma, þar sem Trevignano Romano er sá stærsti. Aðrir bæir í kring eru Sutri og Bracciano en þeir eru allir í um 10 mínútna fjarlægð frá gistiheimilinu í bíl. Til að undirstrika sveitasæluna enn frekar þá er ekkert símasamband á svæðinu þar sem við gistum og veislan verður haldin , EN ekki hafa áhyggjur, það er gott internet. Best er því að ná í fólk í gegnum FaceTime, WhatsApp eða samfélagsmiðla. Fyrir þá sem vilja hreyfa sig verður nóg um að vera, göngu- og hlaupaleiðir liggja um allt svæðið og í um 4 km fjarlægð er fallegur golfvöllur, Golf Nazionale, golfnazionale.it Þangað eru allir velkomnir að spila eða skoða, hringurinn kostar 100 evrur á virkum dögum og 120 um helgar, og hægt er að leigja búnað á staðnum.

Question

Gistingin og ferðalög

Answer

Gistingin er með þessum yndislega ítalska sjarma, einföld, hlýleg og notaleg. Morgunverðurinn er að hætti heimamanna; ostar, croissant, ávextir, álegg, djús og kaffi. Það er kannski ekki egg og beikon, en eitthvað sem passar fullkomlega við umhverfið og stemninguna. Í öllum herbergjum er lítið eldhús og því mælum við með að stoppa í búð á leiðinni og kaupa það helsta sem ykkur gæti vantað, þar sem ekki er hægt að kaupa sér mat á gistiheimilinu. Í boði verður hádegismatur á föstudegi og laugardegi (5.–6. júní) gegn vægu gjaldi. Þar verður boðið upp á einfaldan en góðan mat, svo sem kaldan disk, pasta og meðlæti, og er verðið um 15 EUR á mann. Panta þarf fyrirfram og munum við óska staðfestingar á því hvort þið þiggið matinn síðar Vert er að taka fram að ekki verður opinn bar nema í sjálfri veislunni. Hins vegar verður stór kista með drykkjum þar sem hægt er að setja smá framlag í bauk. Staðarhaldararnir, Antonello og eiginkona hans, leggja sig fram um að gera dvölina okkar sem besta. Á staðnum er einnig bíll/van sem hægt er að nýta til að skjótast í búð eða sinna erindum innan skynsamlegra marka. Varðandi ferðalagið mæli ég með að leigja bíl á flugvellinum í Róm og sameinast í bíla þar sem hægt er. Fyrir þá sem kjósa annað er Uber í boði á flugvellinum og við Sigrún Elva getum leiðbeint með það. Einnig er hægt að panta transfer fyrirfram með aðstoð Antonello eða í gegnum mig. Lokauppgjör og útgáfa farseðla þeirra sem eiga frátekið hjá okkur getur farið fram þegar þið eruð klár en í síðasta lagi 18 maí og mun Helga Soffía hjálpa við það (eftir næstu helgi, er í prófum núna).

Question

Aðstoð

Answer

Ef þið hafið spurningar eða þurfið aðstoð við dvölina eða ferðalagið , endilega sendið mér póst á soffia@feria.is já, ég held mig enn við tölvupóstinn! (miðaldra). Ég geri mitt allra besta til að hjálpa en þið nálgist Helgu Soffíu á messenger. Með þessum orðum vil ég kveikja smá eftirvæntingu, það eru aðeins 30 dagar í þetta ævintýri og saman ætlum við að gera þessa stund ógleymanlega fyrir brúðhjónin og okkur öll. Hlýjar kveðjur, móðir brúðarinnar