Veislustjórar
Einar Örn Guðnason og Hafsteinn Helgi Jóhannsson verða veislustjórar kvöldsins.
Þeir sjá um að stemmingin haldist temmilega góð allt kvöldið og ef þið hafið óskir um skemmtiatriði eða ræðu, sem við hvetjum til því við höfum rosalega gaman af þvi, þá sendið þeim línu eða hringið.
Einar Örn er samnemandi Hörpu úr framhaldsskóla og það sem hún man einna helst eftir frá þeim tíma var litli sveitastrákurinn sem var uppi á sviði fyrir framan allan skólann að dansa samkvæmisdans, snilldarlega. Vann til ýmiskonar verðlaunna og var framúrskarandi á því sviði. Einnig var hann mjög minnistæður sem barþjónn á Breiðinni, alltaf grín og glens og mikið líf í kringum hann
Arnar og Einar kynntust i gegnum kraftlyftinar.
Hafsteinn Helgi er æskuvinur Arnars. Harpa hefur notið góðs af þessum tengslum og fengið að kynnast þessum fyndna svarhúmorista gleðisprenju.